Hjúskaparstaða

Bandarískur félagi minn gat einmitt ekki skilið hvernig ég skuli geta búið með sömu konunni í fjölda ára en ekki vera giftur henni, slíkt er að hans mati óraunhæft.  Það má vel vera að ég gifti mig einhvern tímann, ég bara lít ekki á giftingu sömu augum og þessi ágæti vinur minn "að vestan".  Persónulega sé ég ekki giftingu sem einu leiðina að rómantískri hamingju og ást, er það ekki bara undir manneskjunni komið?
mbl.is Segir sambúð betri en giftingu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Milljarðamæringar

Ég hef einungis eina spurningu, getur maður sem þénar milljarða talað fyrir hönd fólksins í landinu?
mbl.is Romney með 2,7 milljarða í tekjur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mjög mikilvægt!

Þarna er smáskref unnið í baráttu fyrir frelsi á internetinu, alveg frábærar fréttir!  :)
mbl.is SOPA-frumvarpið dregið til baka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tilgangur

Þetta er að mínu mati einkennilegt sjónarspil, eru þau að fara að strengja einhver áramótaheit?

Ráðuneytum fækkar og fækkar, jújú ágætt til að byrja með, en endar þetta ekki bara með ósköpum?  Ég skal ekki segja en verður þetta ekki á endanum allt á hendi forsætis- og fjármálaráðuneytis, þá yrði a.m.k. öll ákvarðanataka snurðulaus innan "ríkisstjórnarinnar".

En að öllu gamni slepptu finnst mér svona sjónarspil vera hálfgerður skrípaleikur.  Sama hvað hver segir þá grunar mig sterklega að flestir viti vel af hverju Jóni og Árna er bolað út.  Er það kannski einskær tilviljun að nákvæmlega þessi ráðneyti verði fyrir valinu?  (hehe segið mér annan eða er áramótaskaupið kannski byrjað?)

Ég myndi bara segja eins og Einstein sagði forðum:  "... this race of the war is complete foolishnes", - en mér finnst allt þetta kapp og karp um ráðherrastóla vera hálfgerð siðleysa.

Gleðilega hátið allir saman og farsælt komandi ár!!!   Wink


mbl.is Ráðherraspilin stokkuð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Viðbjóðslegir glæpir

Ég verð að segja að ég á erfitt með að lesa fréttir af þessum toga.  Þar sem ég á börn þá finn ég fyrir hálfgerðu varnarleysi vitandi það að fólk skuli geta gert barni manns slíka hluti. 

Kemst maður hjá því að verða reiður þegar maður les svona viðbjóð.  Hvað segja félagsfræðingar og afbrotafræðingar að sé hægt að gera við svona menn, er hægt að "betra" slíka menn?


mbl.is Sjö ára nauðgað og myrt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Baaaara ef....

Bara ef Íslendingar væru jafn skynsamir og Þjóðverjar eru oft í fjármálum þá væri lífið sennilega bærilegt hér á Fróni.  Ég get þó ekki verið að væla því ef ég vill búa undir þýzkum fjármálaaga þá get ég alveg eins flutt til Þýskalands, valið er að sjálfsögðu mitt.  (alltaf gaman að dreyma sér aðstæður)

 Sleeping


mbl.is „Vasarnir ekki ótæmandi“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hugmynd

Mitt innlegg í umræðuna beini ég að ríkisstjórninni.  Tökum höndum saman og breytum regluverkinu, þ.e.a.s. við skulum einfaldlega banna allt sama hvaða nafni það heitir, nema annað sé tekið fram.

Shocking


mbl.is Brjáluð ákvörðun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stríðsleikir

Ég á erfitt með að skilja þessa óvild gagnvart stríðsleikjum.  Ég spila þessa leiki annað slagið og hef mjög gaman af því, hef einnig spilað þá á netinu.  Ég vona innilega að ég sé ekki skemmdur eftir það, ég vona að ég taki ekki upp á því að myrða fólk af ástæðulausu.

Mér finnst alla vega sem forsjárhyggja af þessu tagi sé í raun af hinu slæma.  Ef rökin eru þau að ofbeldið sé þvílíkt, og jafnvel líkt einhverjum fyrri hryðjuverkum, af hverju í ósköpum er ekki löngu búið að banna allt annað sem ber keim af slíkum hryðjuverkaárásum?  Hvað með ofbeldisbíómyndir, já og ofbeldisbíómyndir sem fjalla um einhverjar hryðjuverkaárási?  Hvað með fréttamyndir?  Hvað með skáldsögur sem fjalla um ofbeldi?  Hvað með bardagaíþróttir sem eru sýndar í sjónvarpi?  (kannski ekki eins ofbeldisfullt, en ofbeldisfullt þó).

Persónulega finnst mér villandi að banna tölvuleiki, það þjónar í raun engum tilgangi.  Það hefði þjónað fréttinni ef fréttamaðurinn hefði komið með einhver rök eða jafnvel rannsóknir fréttinni til stuðnings, þ.e.a.s. um það hvaða áhrif ofbeldisleikir hafi á huga fólks.  Þá þætti mér í leiðinni áhugavert að sjá álíka rannsókn sem fjallar um t.d. ofbeldisbíómyndir og áhrif þeirra á fólk.

Jæja, ég er hættur að röfla....


mbl.is Þingmenn deila um tölvuleik
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kínverjar

Ég flissaði svolítið með sjálfum mér þegar ég las þessa frétt, í raun út af einhverju sem er þessu ótengt.  Hvað ef Kínverji hefði bóðið í ánna?  Hefði orðið jafn mikið fjaðrafok og um daginn?

Joyful


mbl.is Bauð 112 milljónir í Þverá
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það hlaut að vera.

.... og ég sem verð aldrei veikur  :)
mbl.is Reglulegir ástarleikir geta dregið úr kvefi og flensu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Höfundur

Garðar Valur
Garðar Valur
Tölvunafræðingur á Egilsstöðum

Jan. 2012

S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 31        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband