Kaldur hrollur

Ég geri mér ekki fulla grein fyrir því hvers vegna það fer um mig kaldur hrollur þegar ég les evrópufréttir af þessu tagi, þ.e.a.s. fréttir sem fjalla um Evrópusambandið eða annað því tengdu.  Ég er farin að kalla Evrópusambandið, þ.e. í hausnum á mér, sem "Evrópu-báknið" vegna þess að ég er svo hræddur við það, mér finnst þetta Evrópu-bákn vera svo stórt og mikið að ég einfaldlega hræðist það.  Það eru einhverjar mótmælaaðgerðir í einhverju landi í Evrópu til að reyna að þrýsta á Evrópusambandið til að beygja sig, sem ég persónulega efast um að það geri (að öðru leyti myndi maður aldrei sjá mótmælaaðgerðir af þessu tagi hér á Fróni).

Úr því að þessi frétt fjallaði um landbúnað í Evrópusambandinu, þá væri gaman og fróðlegt að komast að því hvernig Evrópusambandið kæmi íslenskum landbúnaði til góða.  Yrðu ríkisstyrkir hækkaðir eða lækkaðir?  Myndu íslenskir bændur fá að stjórna verðinu eða verða fleiri milliliðir í kerfinu?  Yrði hagstætt að reka lítil bú eða þurfa bú að hafa t.d. að lágmarki 2000 ærgildi eða eitthvað álíka til að standa undir sér?  Verður yfir höfuð arðbært að reka bú?  (sem væri raunveruleg breyting frá íslenska kerfinu þar sem mörg bú eru rekin af hugsjón einni).

Ég man ekki alveg prósentuna um það hverjir styðja Evrópusambandsaðild hérna á Íslandi, kannski voru það 30 eða 40% (það má leiðrétta mig með það), en eru einhverjir af þessum 30 eða 40% bændur???


mbl.is Helltu milljónum lítra mjólkur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Garðar Valur
Garðar Valur
Tölvunafræðingur á Egilsstöðum

Maí 2012

S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Senda í CCI | Hafðu samband